11.4.06

söngur trjánna e. Henrik Garcia

vaknið svæflar!

nú grær hinni einu gjöf
um gærdags virki

eldvængir júnímánaðar
hefja sig yfir ægræn höf



komið allir kyndilberar!
korthafar nýs tímabils!

lífsluktir! lampar!
laufmyllur! ljósbjöllur!

ljómið!

hvað er annars
ævin nema blik?

hvað var veturinn
nema strit?



hér rís dóttir
morguns og daggar

alveg fífill vex hún
miðnætursól úr malbikinu

og flengir húmbúkkin:
skamm, skammdegi!


Henrik Garcia

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Refresh Page